ÞRETTÁNDAGLEÐI
HJÓNAKLÚBBS GRINDAVÍKUR
Þrettándadansleikur verður haldinn á Sjómannastofuni Vör
laugardagskvöldið 7. janúar 2012.
Fjörið hefst kl. 22:00 og lýkur kl. 03:00.
Miðaverð 3500kr.
Hljómsveitin Renta mun sjá um að allir skemmti sér vel.
Léttar veitingar um miðnættið í boði klúbbsins.
Mieasala verður á Vör, miðvikudagskvöldið 4. janúar milli 20:00-21:00.
Kæru klúbbsmeðlimir nú fjölmennum við á fyrsta dansleik ársins 2012!
Einnig má vitja miða hjá :
Svövu sími 849-4969 / 426-8313
Sæu sími 868-3206 / 426-8314
Elsu sími 696-9784 / 426-8428
Ævintýraferð Hjónaklúbbs Grindavíkur- Helgina 19.-21.ágúst 2011
Helgina 19.-21.ágúst 2011
Kæru klúbbfélagar, þá er komið að hinni árlegu ævintýraferð sem enginn má missa af.
Í ár verður Sveitakráin Krían fyrir valinu, þetta er ekta íslensk sveitakrá, sem staðsett er rétt austan við Selfoss. Beygt er inn á veg nr 33 Gaulverjarbæjarvegur sem er um 3km frá Selfossi.
Á föstudagskvöldið mæta allir með góða skapið og koma sér fyrir.
Á laugardaginn verður farið í létta óvissuferð sem allir geta farið í. Einnig skemmtum við okkur saman, farið í leiki og fleira sem kemur á óvart.
Um kvöldið munum við borða góðan mat sem er í boði klúbbsins. Allir að koma með sín borðáhöld og veigar.
Þema helgarinnar verður kúrekahjón híha, híha, gobba gobb............
Allir að draga fram kúrekaskó og fleira sem því fylgir, búum til kúrekastemningu því við munum syngja og dansa af öllum lífsins sálarkröftum allt kvöldið, trúbadorinn Jói Baldurs mun sjá okkur fyrir dansleik frameftir nóttu.
Allir með/verðlaun í boði fyrir .....kúrekahjón.
Kostnaður helgarinnar er 5000 kr á hjón yfir helgina, inn í því er tjaldstæði, matur og aðstaða inni. Öllum er frjálst að koma með sitt eigið vín en ekki er leyfilegt að taka það inn á staðinn, þar sem þau eru með bar.
Þeir sem vilja gista í húsi, sjá um að panta það sjálfir, nóg er af gistingu á Selfossi og þar í kring.
Skráning í ferðina er til 15. ágúst hjá
Palla og Ástu S:893-4343
Einar og Díu S:897-6296
Lalla og Vigdísi S:869-0154... Nánar
Óvissuferð 14 maí 2011
Óvissuferð
Hjónaklúbbs Grindavíkur
Hin árlega óvissuferð hjónaklúbbsins verður farin þann 14. maí 2011.
Mæting er að Borgarhrauni 2 kl. 17:50 og lagt af stað stundvíslega kl. 17:59.
Þema ferðarinnar er
Júróvision
Nauðsynlegur útbúnaður í ferðina skal vera 1 stk bakpoki á hjón.
Hann skal skilyrðislaust innihalda eftirtalda hluti
sem bráðnauðsynlegir eru hverjum þátttakanda:
- tvö plastglös
- tvö sprittkerti
- söngolía að eigin vali
Nú er um að gera að skrá sig í þessa frábæru óvissuferð
sem vafalaust verður ógleymanlegt Eurovision kvöld.
Verð pr.mann er 1500kr eða 3000kr. á hjón
Skráið ykkur fyrir 10. maí hjá einhverju okkar.
Margrét og Jói í síma 895-0049 eða Margretogjoi@simnet.is
Alda og Bessi í síma 867-0370 eða Alda.a.gylfadottir@landsbankinn.is
Björk og Maggi í síma 896-8685 eða Bjorksv@hive.is
Nokkur pör eiga enn eftir að greiða árgjaldið sitt vinsamlegast greiðið inn á reikn.
0143-15-380097 kt.570306-0140 sem fyrst og setja nafn greiðanda sem skýringu.
Árshátíð og Hótelferð
Árshátíð og Hótelferð
Kæru félagar nú styttist í árshátíðina okkar en hún verður 5.mars
Farið verður á Hótel Selfoss sem er á Eyrarvegi 2 Selfossi og gist eina nótt.
Hjónaklúbburinn verður með sína árshátíð, kvöldverð og skemmtun sem nefndin sér um í eigin sal, en síðan förum við á ball með öðrum hótelgestum.
Verð fyrir klúbbmeðlimi 20.000.- á hjón.
Verð fyrir gestahjón er 25.900.-
Innifalið í verði er þriggja rétta kvöldverður, gisting með morgunverði og ball á hótelinu.
Þeim sem hafa áhuga á að vera tvær nætur er bent á að panta aukanótt í síma 480-2500. Aukanótt með morgunverði kostar 7.900.-
Þar sem þetta tilboð bar brátt að biðjum við ykkur um hafa hraðar hendur við að skrá ykkur en skráning er til
23. febrúar (miðvikudagur í næstu viku).
Þórdís og Grétar: 426-7070
Guðmundur og Stefanía: 426-7430
Jóhanna og Viðar: 426- 7616, 695-7616
Kveðja, nefndin. 
Gleðilegt ár
Nýársdansleikur Hjónaklúbbsins
Aðalfundur
Aðalfundur verður þann 12. nóvember í Framsóknarsal, Víkurbraut kl 20.00
Súpa og brauð í boði klúbbsins,
Venjulega aðalfundarstörf, glens og gaman að fundarstörfum loknum
Vonumst til að sjá sem flesta.
Stjórnin
